Friday, April 19, 2024
HomeErlentAldo skoðar möguleika sína - Vill berjast en Frankie Edgar bíður við...

Aldo skoðar möguleika sína – Vill berjast en Frankie Edgar bíður við símann

Conor McGregor Jose AldoJose Aldo virðist vera með brákað rifbein samkvæmt fréttum frá Brasilíu. Enn sem komið er mun bardagi Jose Aldo og Conor McGregor fara fram.

Fréttirnar um meiðsli Aldo láku óvænt út en meiðslin áttu að hafa átt sér stað á æfingu í morgun (þriðjudag). Aldo fór í nánari skoðun á sjúkrahúsi og er að velta fyrir sér möguleikunum framundan. Hann vill ennþá berjast.

Guilherme Cruz er virtur blaðamaður í Brasilíu og sagði þetta á Twitter fyrir skömmu.

Þá segir Ariel Helwani að leynd hafi átt að hvíla yfir meiðslunum.

Enn sem komið er hefur ekkert verið staðfest og sagði Dana White þetta á Twitter fyrr í kvöld. Er þetta allt saman stormur í vatnsglasi?

Neikvæðustu færslu kvöldsins á hins vegar John Kavanagh, yfirþjálfari Conor McGregor. Kavanagh póstaði þessu myndbandi og gefur ekki góð fyrirheit fyrir bardagann:

Geti Aldo ekki barist er Frankie Edgar tilbúinn til að hlaupa í skarðið en hann bíður nú við símann.

Ariel Helwani heldur því fram að viðræður hafi átt sér stað á milli Frankie Edgar og UFC.

There has been dialogue. RT @kirondoyle: @arielhelwani Is that to say that frankie has?

— Ariel Helwani (@arielhelwani) June 23, 2015

Ekkerthefurveriðstaðfest afhálfu UFC.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular