Alistair Overeem fékk matareitrun á föstudaginn aðeins sólarhringi fyrir bardaga sinn gegn Mark Hunt. Overeem var kastandi upp og þurfti að fara upp á spítala.
Alistair Overeem sigraði Mark Hunt með rothöggi í 3. lotu. Bardaginn var skemmtilegur og var Overeem með yfirhöndina þegar hann náði rothögginu.
Dana White is here now with Reem. Said he’s been throwing up last 24 hours, was in the hospital … but refused to pull out of the fight.
— Ariel Helwani (@arielhelwani) March 5, 2017
Á blaðamannafundinum eftir bardagann greindi Dana White, forseti UFC, frá því að Overeem hefði fengið matareitrun daginn fyrir bardagann. Overeem þurfti að dvelja á spítala í sólarhring vegna matareitrunar. Hann þurfti að fá næringu í æð og gat ekki farið af hótelherberginu enda sífellt kastandi upp.
Overeem var sendur upp á spítala til aðhlynningar en það kom aldrei til greina hjá honum að hætta við bardagann.
Hér má sjá blaðamannafundinn með Alistair Overeem og Dana White síðan í gær.