Á laugardaginn fara fram tvö mót í hnefaleikum í húsakynnum HFK og VBC í Kópavogi. Það fyrra er Diplómamót fyrir yngri keppendur og hefst keppni klukkan þrjú og lýkur kl fimm. Klukkan átta hefst hnefaleikamót fyrir fullorðna en húsið opnar klukkan sjö og aðgangseyrir eru litlar 1000 kr.
Fimm hnefaleikafélög koma að mótinu en það eru Hnefaleikafélag Akraness, Hnefaleikafélag Kópavogs, Hnefaleikafélag Reykjaness, Hnefaleikafélag Reykjavíkur og Hnefaleikafélagið Æsir.
Margir athyglisverðir bardagar eru á dagskrá. Þrír úr Keppnisliði Mjölnis berjast á laugardaginn en þeir Bjarki Þór, Brynjólfur Ingvarsson og Diego Björn Valencia hafa allir keppt í MMA. Bjarki Þór tekst á við tvöfaldan Íslandsmeistara í hnefaleikum, Jafet Örn. Annar athyglisverður bardagi á dagskrá er bardagi í 64 kg flokki þar sem Þórður Bjarkar tekst á við Brynjólf en þeir hafa báðir verið gera það gott fyrir utan landsteinana. Þá mun Diego Björn Valencia berjast sinn annan boxbardaga er hann tekst á við Helga Ingvarsson úr Æsi.
Ekki er komin uppröðun á bardögunum en hér eru bardagarnir.
87 kg Kristján Kristjánsson HFK vs Aron Pálmasson Æsir
64 kg Þórður Bjarkar Árelíusson HFK vs Brynjólfur Ingvarsson HR
81- kg Jafet Örn Þorsteinsson HFK vs Bjarki Þór Pálsson HR
64 kg Margrét Ásgerður Þorsteinsdóttir HAK vs Erla Guðrún Hjartardóttir HR
77 kg Margrét Guðrún Svavarsdóttir HFR vs Freyja Kristín Guðmunsdóttir Æsir
94 kg Helgi Ingvarsson Æsir vs Diego Björn Valencia HR
69 kg Benedikt Axel Andersen HR vs Kristinn Godfrey Æsir
81 kg Tómas Einar Ólafsson HFR vs Stefán Örn Hannesson Æsir