Nú er akkúrat vika í stærsta bardaga ársins. Þeir Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov mætast á UFC 229 um næstu helgi.
Það hefur verið fremur rólegt í kringum risabardaga Conor McGregor og Khabib Nurmagomedov. Það hitnaði þó heldur betur í kolunum í síðustu viku þegar UFC hélt blaðamannafund með þeim báðum í New York.
Í vikunni fyrir bardagann verða fleiri fjölmiðlaskyldur. Búast má við að báðir mæti í viðtöl hjá stórum fjölmiðlum í Bandaríkjunum hér og þar á næstu dögum auk annarra viðburða á vegum UFC. Á miðvikudaginn verður opin æfing með Conor, Khabib, Tony Ferguson og Anthony Pettis en Ferguson og Pettis mætast í næstsíðasta bardaga kvöldsins. Á fimmtudaginn verður svo annar blaðamannafundur með Conor, Khabib og Dana White en í þetta sinn verða aðdáendur viðstaddir. Það má því búast við enn meiri látum heldur en síðast.
Á föstudaginn verður svo formleg vigtun um morguninn og svo sjónvarpsvigtun um eftirmiðdaginn á Las Vegas tíma. Bardaginn sjálfur fer svo fram laugardaginn 6. október í Las Vegas í T-Mobile höllinni.