Tveir keppnismenn úr Reykjavík MMA berjast í MMA á laugardaginn. Þeir Aron Kevinsson og Ívar Orri Ómarsson keppa á Vison MMA Combat bardagakvöldinu á laugardaginn.
Bardagakvöldið fer fram í Carlisle á Englandi og er þetta þriðja bardagakvöld Vision MMA Combat. Flestir bardagarnir eru áhugamannabardagar og þar munu tveir Íslendingar berjast áhugamannabardaga á laugardaginn.
Ívar Orri mætir Peder Rosada-Svendsen (0-2) í veltivigt en þetta verður fyrsti áhugamannabardagi Ívars. Aron Kevinsson (0-1) mætir svo Paul Corrie (1-4) í léttvigt. Aron tók sín fyrstu skref í MMA á Interclub bardagasenunni (æfingabardagar sem fara ekki á bardagaskorið) og gerði Ívar slíkt hið sama. Aron tók svo sinn fyrsta áhugamannabardaga í júlí á Caged Steel bardagakvöldinu.
Bardagarnir fara fram á laugardagskvöldið og bendum við lesendum á að fylgjast með strákunum á Facebook síðu Reykjavík MMA og Instagram síðu þeirra.