Saturday, April 20, 2024
HomeForsíðaBjartur tapaði eftir dómaraákvörðun

Bjartur tapaði eftir dómaraákvörðun

Bjartur Guðlaugsson var rétt í þessu að tapa fyrir Noah Mannion á Fightstar 16 bardagakvöldinu í London í kvöld.

Þeir Bjartur og Bjarki Ómarsson keppa báðir í kvöld á Fightstar 16 og var Bjartur fyrri af Íslendingunum tveimur. Bardaginn fór fram í fjaðurvigt en um áhugamannabardaga var að ræða.

Fyrsta lotan byrjaði kröftuglega og náði Mannion nokkrum þungnum höggum í standandi viðureign. Hann náði svo fellu og náði þar nokkrum góðum höggum í gólfinu á Bjart. Bjartur reyndi að standa upp en var tekinn niður aftur. Bjartur náði nokkrum sinnum að snúa stöðunni við í skamma stund en Mannion var fljótur að koma sér á fætur. Seinni tvær loturnar voru nokkuð svipaðar og sú fyrsta og hafði Mannion yfirhönd.

Bardaginn fór því allar þrjár loturnar þar sem Mannion sigraði eftir dómaraákvörðun. Streymi er af bardögunum í kvöld en streymið höktir verulega og dettur reglulega út í langan tíma. Erfitt að horfa á streymið í sannleika sagt.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular