HomeErlentBonfim klínískur í sigri á fyrrverandi meistara Muhammad

Bonfim klínískur í sigri á fyrrverandi meistara Muhammad

Gabriel Bonfim vann stærsta sigur ferils síns þegar hann sigraði Belal Muhammad með einróma dómaraákvörðun eftir fimm lotu aðalbardaga í Apexinu um helgina.

Allir þrír dómararnir skoruðu bardagann 50-45 fyrir Bonfim sem vann allar fimm loturnar á öllum dómaraspjöldum.
Engin hanskasnerting var á milli bardagamannanna þegar bardaginn hófst og strax var ljóst að spennan á milli þeirra var raunveruleg. Fyrsta lotan fór rólega af stað en Bonfim náði snemma að setja tóninn með stöðugri pressu og góðri stjórn á fjarlægðinni.
Muhammad lenti með fyrsta stóra högg bardagans þegar hann tengdi með beinskeyttri 1-2 samsetningu. Það reyndist þó eitt af fáum skiptum sem honum tókst að ná afgerandi árangri á fótunum.

Það sem vakti athygli var hversu mikið Muhammad var á afturfætinum sem er mikið úr karakter fyrir hann. Fyrrverandi meistarinn er vanalega sá sem sækir fram og stjórnar taktinum, en að þessu sinni var það Bonfim sem tók miðjuna og neyddi Muhammad til að bregðast við.

Í annarri lotu reyndi Muhammad að sækja meira fram en Bonfim svaraði ítrekað með hnitmiðuðum höggum. Brasilíumaðurinn var sérstaklega öflugur með stunguna, beinu hægri og utanverð lágspörkin sem fóru smám saman að taka sinn toll.

Bonfim hóf þriðju lotuna af krafti þegar hann lenti með hnitmiðaðri 1-2 samsetningu. Beina hægri höndin lenti svo hreint að munnstykki Belal flaug út úr munninum þegar höggið tengdi. Á sama tíma hélt hann áfram að vinna markvisst á fæturna á Muhammad og áhrif lágspörkanna voru farin að sjást greinilega.

Eftir því sem leið á bardagann varð munurinn sífellt sýnilegri. Bonfim hélt ró sinni, flýtti sér aldrei og tók enga óþarfa áhættu. Hann gekk stöðugt fram, stjórnaði fjarlægðinni og lét Muhammad vinna á undanhaldi stærstan hluta bardagans.

Muhammad átti sín bestu augnablik í fjórðu lotu og samkvæmt höggatölfræði lenti hann fleiri höggum en Bonfim í lotunni. Þrátt fyrir það tókst Bonfim að halda áfram að lenda með áhrifameiri höggin og ítrekað stöðva skriðþungann þegar Muhammad reyndi að taka yfir bardagann.

Þegar komið var í fimmtu lotu var Muhammad farinn að bera greinileg merki bardagans í andlitinu á meðan Bonfim virtist nánast ósnortinn. Lengdarforskot Brasilíumannsins reyndist lykilatriði og hann nýtti það af mikilli nákvæmni allan bardagann.
Bonfim vann ekki bardagann með einu stóru augnabliki. Hann vann hann með 25 mínútna aga, pressu og tæknilegri nákvæmni. Muhammad átti sín augnablik en fann aldrei varanlega lausn á lengd, beinu höggum og lágspörkum Brasilíumannsins sem sigldi örugglega stærsta sigri ferils síns í höfn.

Bonfim hrósaði Belal mikið í viðtalinu við Paul Felder eftir bardaga, þakkaði Jesú Krist og að lokum kallaði hann út Jack Della Maddalena.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið