Glímumótið Metamoris 4 verður haldið þann 9. ágúst í Los Angeles og er glímukvöldið farið að taka á sig mynd samkvæmt háværum orðrómum. Samkvæmt Twitter hafa Chael Sonnen og Andre Galvao samþykkt að mætast í aðal glímu kvöldsins.
Metamoris hefur stimplað sig rækilega inn í glímuheiminn og er viðburðunum beðið með mikilli eftirvæntingu. Mótið er boðsmót þar sem þekktum glímumönnum er boðin þátttaka og keppir hver keppandi bara eina glímu.
Svo virðist sem Chael Sonnen og Andre Galvao verði í aðal glímu kvöldsins. Chael Sonnen lagði MMA-hanskana á hilluna í síðustu viku eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Hann er afar sterkur glímumaður og með frábærar fellur. Andstæðingur hans verður einn besti glímumaður heims, Andre Galvao, en hann er margfaldur heimsmeistari og ADCC glímumeistari.
To follow up on the Chael Sonnen vs Andre Galvao #Metamoris4 rumor I posted last night. That is now confirmed. Will be main event. Aug 9 LA
— FrontRowBrian (@FrontRowBrian) June 19, 2014
Hávær orðrómur er uppi um að þetta verði hinar glímur kvöldsins án þess að það hafi verið staðfest.
Kron Gracie gegn Benson Henderson
Saulo Ribeiro gegn Comprido Medeiros
Dean Lister gegn Josh Barnett
Keenan Cornelius gegn Kevin Casey
Kit Dale gegn Garry Tonon
Orlando Sanchez gegn Vinny Magalhaes
Það verður að teljast ólíklegt að Ben Henderson keppi að þessu sinni þar sem hann á bardaga í UFC gegn Rafael Dos Anjos þann 23. ágúst. Þrátt fyrir það lítur þetta glímukvöld ansi vel út.
Keptu Keenan Cornileus og Kevin Casey ekki á sidasta Metamoris?