Chris Weidman lét Vitor Belfort heyra það í vigtuninni í gærkvöldi. Weidman var æstur er hann stóð andspænis Belfort.
Weidman frétti að testósterón magn Belfort hefði mælst 12 ng/ml þann 16. mars. Tveimur vikum síðar mældist Weidman með 3,7 ng/ml. Þann 28. apríl var Belfort aftur prófaður en í þetta sinn var testósterón magn hans 5 ng/ml á meðan Weidman var með sama magn.
Þessar tölur sanna ekki neitt og var engin ástæða fyrir íþróttsambandið að grípa inn í. Báðir bardagamenn hafa staðist öll lyfjapróf í aðdraganda bardagans hingað til.
Báðar tölurnar eru í raun mjög lágar. Eðlilegt magn testósteróns í þvagprufu er vanalega á bilinu 9,7 ng/ml til 109,7 ng/ml. Þess ber þó að geta að þvagprufur á testósterón magni eru mjög óáreiðanlegar mælingar. Í þvagprufum getur magnið verið mjög breytilegt eftir tíma dags er prófið fór fram. Nánar má lesa um niðurstöðurnar á vef Bloody Elbow hér.
Weidman var þó mjög ósáttur í vigtuninni í gær: „Hann er ennþá að svindla og hann mun borga fyrir það á morgun,“ sagði Weidman í vigtuninni.
Vitor hefur alltaf verið reiðari, áfram Weidman