Friday, April 26, 2024
HomeErlentConor McGregor átti að berjast á UFC 224

Conor McGregor átti að berjast á UFC 224

Conor McGregor heldur því fram að hann hafi átt að berjast á UFC 224 síðasta maí. Eitthvað hafi þó komið upp sem varð til þess að ekkert varð úr bardaganum.

Þetta sagði Conor McGregor á Instagram fyrr í kvöld. Conor var í 4. sæti á lista Forbes yfir tekjuhæstu íþróttamennina undanfarna 12 mánuði en í Instagram póstinum heldur hann því fram að hann hefði verið ofar en Lionel Messi og Cristiano Ronaldo (sem voru í 2. og 3. sæti) ef bardaginn á UFC 224 hefði farið fram.

UFC 224 fór fram í Ríó þann 12. maí. Samkvæmt Ariel Helwani átti Conor að mæta Rafael dos Anjos um bráðabirgðartitilinn í veltivigt áður en eitthvað hafi komið upp á. Telja má líkur á því að ef þetta sé satt hjá Conor hafi rútuárásin hans í apríl komið í veg fyrir bardagann gegn dos Anjos í maí. Þeir Conor og dos Anjos áttu einmitt að mætast um léttvigtartitilinn á UFC 196 áður en dos Anjos meiddist. Nate Diaz kom í hans stað og endaði á að sigra Conor.

Taka skal þessu með ákveðnum fyrirvara en rútuárásin fór fram þann 5. apríl. Tveimur vikum fyrir það höfðu nokkrir miðlar greint frá því að bardagi á milli dos Anjos og Covington væri í vinnslu en hann var svo endanlega staðfestur á blaðamannafundi föstudaginn 6. apríl.

Rafael dos Anjos mun þó berjast um bráðabirgðartitil nú um helgina gegn Covington í næstsíðasta bardaga kvöldsins á UFC 225.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular