Næsti bardagi Conor McGregor verður ekki titilbardagi. Íslandsvinurinn Conor McGregor mun mæta Þjóðverjanum Dennis Siver þann 18. janúar í Boston.
Þetta kemur vissulega á óvart en hinn írski McGregor er í 5. sæti á styrkleikalista UFC en Siver stendur eins og er í 10. sæti. McGregor er með fjóra bardaga að baki hjá UFC og hafa allir bardagar hans verið afgerandi sigrar. Hann hefur verið á hraðleið upp deildina með augun föst á fjaðurvigtarbeltinu. Margir töldu það líklegt að McGregor myndi næst fá sigurvegarann úr titilbardaga Jose Aldo og Chad Mendes.
Því miður fyrir McGregor eru flestir á topplista deildarinnar þegar komnir með andstæðing. Cub Swanson mun keppa gegn Frankie Edgar, Ricardo Lamas gegn Dennis Bermudez og Chan Sung Jung hefur verið sendur í hernaðarskyldu í sínu heimalandi. Þetta skilur aðeins Dennis Siver og Nik Lentz eftir á topp tíu listanum.
Siver sigraði Charles Rosa á UFC Fight Night 59 en fyrir það hafði hann tapað tveimur bardögum í röð. Siver sem er 35 ára gamall og á loka spretti feril síns mun því eiga í erfiðleikum með hinn 26 ára McGregor. Þess má geta að Árni Ísaksson sigraði Dennis Siver í veltivigtarbardaga árið 2006.
Margir hafa sett spurningamerki við þennan bardaga þar sem McGregor hefur ekki enn fengið sterkan glímumann líkt og Nik Lentz, Dennis Bermudez eða Chad Mendes. Í stað þess hefur hann fengið bardagamenn sem vilja standa og skiptast á höggum sem er nokkuð sem hentar McGregor vel.
Jose Aldo berst iðulega aðeins tvisvar á ári með löngu millibili og er meiðslagjarn. McGregor gæti því sigraði Siver í janúar og fengið bardaga gegn Aldo í apríl/maí ef UFC kýs að fara þá leið.
Bardaginn verður aðalbardaginn á Fight Night bardagakvöldi í Boston en Conor McGregor er gríðarlega vinsæll þar enda hefur Boston sterka tengingu við Írland. Bardagakvöldið fer fram á sunnudegi og er sama dag og undanúrslitin í NFL fara fram. Hugsanlega er Fox Sports sjónvarspsstöðin að reyna að fá NFL aðdáendur til að sjá Conor McGregor.