UFC tilkynnti fyrr í dag að fyrrum Strikeforce og Pride meistarinn Dan Henderson muni takast á við Strikeforce þungavigtarmeistarann Daniel Cormier í bardaga í léttþungavigt.
Bardaginn verður næst síðasti bardaginn á UFC 173 þar sem bantamvigtarmeistarinn Renan Barao ver titil sinn gegn T.J. Dillashaw.
Daniel Cormier sigraði seinast Patrick Cummins auðveldlega og Dan Henderson rotaði Shogun Rua í þriðju lotu í bardaga þar sem báðir keppendur voru nálægt því að sigra. Henderson hafði hins vegar tapað seinustu þrem bardögum á undan og ef hann tapar gegn Cormier gæti hann hugsanlega lagt hanskana á hilluna eða verið leystur undan samningi sínum við UFC.
Sigurvegari bardagans fer aftast í röðina til þess að skora á UFC léttþungavigtar meistarann Jon Jones. Svíanum Alexander Gustafsson og Brasilíumanninum Glover Texeira hefur þó verið lofuð atlögu að titlinum. Sá síðarnefndi tekst á við Jones nú á laugardaginn.
Er einhver í léttþungavigt sem getur sigrað Jon Jones?