Það var eiginlega of mikið um að vera um helgina í bardagaheiminum – UFC 305, CJI og ADCC svo eitthvað sé nefnt. Dricus Du Plessis varði beltið sitt gegn Izzy í skemmtilegum bardaga en Izzy var ekki alveg sami maðurinn og við þekktum áður. Við gerum upp alla aðalbardagana frá kvöldinu ásamt því að stikla á stóru í prelims hlutanum.
Það verður einnig mikið að gera hjá Íslendingum í komandi mánuði og förum við yfir allt það helsta þar. Nýjasta nýtt er auðvitað bardaginn hennar Valgerðar gegn Shauna O’Keeffe 20. september.
Að lokum snertum við á næsta APEX-kvöldi. Jared Cannonier, sem er orðinn 40 ára gamall, mætir ungum up n comer Caio Borralho. Þetta er klassísk uppsetning þar sem yngri kynslóðin fær tækifæri til að taka við keflinu frá þeirri eldri.