Friday, April 19, 2024
HomeForsíðaEndurkoma Dominick Cruz

Endurkoma Dominick Cruz

Dominick-Cruz-201-WEC-53-460x270Í kvöld fer fram eitt besta bardagakvöld UFC á þessu ári. UFC 178 er hlaðið stjörnum á borð við Conor McGregor, Donald Cerrone og Demetrious Johnson. Eitt nafn hefur þó gleymst í umræðunni en það er nafn fyrrum bantamvigtarmeistarans Dominick Cruz.

Cruz mun takast á við Takeya Mizugaki sem hefur verið brennandi heitur upp á síðkastið og er ósigraður í seinustu fimm bardögum. Þegar Cruz stígur inn í búrið hafa liðið næstum þrjú ár síðan hann keppti seinast í MMA. Hann hefur þurft að takast á við hin ótrúlegustu meiðsli bæði á hnjám og í nára. Cruz er þó ósigraður í seinustu tíu bardögum og hans eina tap kom gegn Urijah Faber árið 2007. Í júlí 2011 tókust þeir aftur á og þar sigraði Cruz örugglega.

Það er til mikils að vinna fyrir bæði Mizugaki og Cruz. Með sigri gæti Mizugaki komið sér í stöðu til þess að keppa um titilinn. Cruz er fyrrverandi meistari og áður en hann meiddist töldu margir að hann væri einn af þeim bestu pund fyrir pund. Fyrr á þessu ári þurfti Cruz að láta beltið af hendi vegna meiðslanna svo til þess að styrkja stöðu sína sem einn besti bardagamaðurinn í sínum þyngdarflokk verður hann að sigra í kvöld.

cruzBesta vopn Cruz er án efa fótavinnan Athyglisvert er að sjá hvort Cruz sé búin að missa sitt besta vopn vegna meiðslanna. Georges St. Pierre lenti í sömu hnémeiðslum og Cruz og var ekki eins hreyfanlegur og fyrir meiðslin. Cruz fer inn og út og verst mjög auðveldlega með því að vera ekki á þeim stað sem andstæðingur hans heldur að hann eigi að vera á. Cruz hefur einstakan stíl sem engin ætti að láta framhjá sér fara.

Cruz sigraði seinast Demetrious Johnson þegar flugumeistarinn var enn í bantamvigt. Hann hefur einnig sigrað Urijah Faber, Joseph Benavidez, Ian McCall og fleiri. Seinasti sigur Mizugaki kom gegn Fransisco Rivera eftir dómaraúrskurð. Bardaginn er síðasti upphitunarbardagi (e. prelims) kvöldsins og ætti því að hefjast um kl 1:30 í nótt.

Brynjar Hafsteinsson
Brynjar Hafsteinsson
-Greinarhöfundur -Félagsfræðinemi HÍ -MMA-spekingur frá 1999 -Sparkboxari
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular