Friday, March 29, 2024
HomeErlentEr þetta versta klúður Reebok hingað til?

Er þetta versta klúður Reebok hingað til?

anderson aldo

Fataframleiðandinn Reebok hefur gert mörg vandræðaleg mistök en nú hafa þau toppað sig. Það er óhætt að segja að nýjasti Anderson Silva bolurinn sé enn eitt klúðrið.

Samningur Reebok fataframleiðandans er sjö ára samningur sem hófst í ár. Fyrsta árið hefur verið einkennt af óteljandi mistökum fataframleiðandans fyrir utan óánægju bardagamanna með laun þeirra fyrir að klæðast fatnaðinum.

Hér að ofan má sjá nýjasta Anderson Silva bolinn nema hvað á bolnum stendur Anderson Aldo! Anderson Silva og Jose Aldo eru báðir frábærir brasilískir bardagamenn en eiga fátt annað sameiginlegt.

anderson aldoooo

Miðað við mistökin sem Reebok hafa gert síðan samningurinn tók gildi mætti halda að það væri enginn sem færi yfir fatnaðinn sem fer í sölu. Hvernig er hægt að klúðra svona einföldum hlut eins og að skrifa Anderson Silva?

Nú þegar er búið að taka bolinn úr sölu en enn einu sinni sjáum við bol frá Reebok með röngum merkingum.

Sjá einnig: Hlægileg mistök á Reebok fatnaði UFC

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular