HomeErlentGorimbo leggur hanskana á hilluna eftir stuttan UFC feril

Gorimbo leggur hanskana á hilluna eftir stuttan UFC feril

Themba Gorimbo hefur tilkynnt að hann sé hættur í MMA eftir stuttan en eftirminnilegan feril í UFC.

Gorimbo, sem er frá Zimbabwe, lýkur ferlinum með 14 sigra og sjö töp. Í UFC vann hann fjóra bardaga og tapaði fjórum, en síðasti bardagi hans var gegn Jonathan Micallef í Perth þann 2. maí þar sem hann tapaði eftir klofna dómaraákvörðun.

Tapið gegn Micallef var þriðja tap Gorimbo í röð og í kjölfarið ákvað hann að leggja hanskana á hilluna. Í tilfinningaþrunginni færslu á samfélagsmiðlum sagðist Gorimbo hafa gefið íþróttinni allt sem hann átti. Draumurinn hefði verið að verða UFC-meistari og ef hann gæti ekki náð því markmiði ætlaði hann að ganga frá íþróttinni.

Saga Gorimbo vakti mikla athygli þegar hann kom inn í UFC. Eftir fyrsta sigur sinn í samtökunum gegn Takashi Sato árið 2023 greindi hann frá því að hann ætti aðeins sjö dollara á bankareikningnum sínum. Á sama tíma var hann að reyna að byggja upp feril í stærstu MMA-samtökum heims og hafði sofið í æfingaaðstöðunni þar sem hann æfði.

Þrátt fyrir eigin fjárhagsvandræði ákvað Gorimbo að selja bardagagallann sinn til að safna pening fyrir vatnsbrunni í heimalandi sínu. Sú saga vakti athygli Dwayne “The Rock” Johnson sem tengdi við sögu hans og ákvað að hjálpa honum. Johnson kom Gorimbo á óvart og gaf honum hús í Miami.

Eftir það virtist ævintýrið rétt vera að byrja. Gorimbo vann fjóra bardaga í röð í UFC, gegn Takashi Sato, Pete Rodriguez, Ramiz Brahimaj og Niko Price. Hann var orðinn einn áhugaverðasti karakterinn í veltivigtinni, ekki endilega vegna þess að hann var talinn líklegasti framtíðarmeistarinn, heldur vegna þess hversu einstök saga hans var.

Sigurgangan endaði hins vegar gegn Vicente Luque í desember 2024. Luque kláraði Gorimbo með uppgjafartaki á aðeins 52 sekúndum og eftir það fylgdu töp gegn Jeremiah Wells og Jonathan Micallef.

Gorimbo var aðeins 35 ára þegar hann tilkynnti ákvörðunina en virtist sjálfur líta á þetta sem lokapunkt. Hann sagði þó að mögulega gæti hann snúið aftur í íþróttina síðar sem þjálfari eða umboðsmaður, en að nú væri fjölskyldan í forgangi.

Þótt UFC-ferill Gorimbo hafi verið stuttur skilur hann eftir sig sögu sem margir muna. Hann kom frá miklum erfiðleikum, komst í UFC, vann fjóra bardaga í stærstu samtökum heims og varð táknmynd þrautseigju fyrir marga aðdáendur.

Gorimbo náði ekki draumnum um UFC-beltið en saga hans varð stærri en bara sigrar og töp. Hún varð saga um mann sem kom nánast allslaus inn í stærstu MMA-senu heims, barðist sig áfram og snerti fólk langt út fyrir búrið.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið