Bjartur Guðlaugsson var rétt í þessu að tapa bardaga sínum á FightStar bardaga kvöldinu í London. Bjartur tapaði eftir tæknilegt rothögg í 1. lotu.
Bjartur mætti Rúmenanum Drotar Dario (4-2 fyrir bardagann) í fjaðurvigt. Dario byrjaði vel með spörkum í skrokkinn á meðan Bjartur reyndi að loka fjarlægðinni. Bjarti tókst að ná „clinchinu“ í skamma stund en Dario varðist vel og snéri stöðunni sér í vil. Dario hélt áfram að finna opnanir standandi og sótti stíft.
Þegar 1. lota var um það bil hálfnuð náði Dario hásparki sem felldi Bjart. Dario fylgdi því eftir með nokkrum höggum í gólfinu áður en dómarinn stöðvaði bardagann. Sigur hjá Drotar Dario eftir tæknilegt rothögg í 1. lotu.