Fyrsti dagur Evrópumeistaramóts áhugmanna í MMA er í dag og keppa fimm Íslendingar af átta í dag.
Keppnin byrjar kl 10 í dag og er Bjarki Ómarsson fyrstur af Íslendingunum. Hann mætir Norður-Íranum Bobby Sheppard í léttvigt. Nafni hans, Bjarki Þór Pálsson, er næstur á eftir honum og mætir Þjóðverjanum Lukas Licht í veltivigt.
Sjá einnig: Leiðin að búrinu – Evrópumótið
Egill Øydvin Hjördísarson fylgir Bjarka Þóri á eftir en hann mætir Robin Kvarda frá Tékklandi í léttþungavigt. Bjartur Guðlaugsson er á eftir Agli og mætir hann Ítalanum Michele Martignoni í fjaðurvigt.
Síðastur af Íslendingunum í dag er Hrólfur Ólafsson en hann mætir Norðmanninum Marius Hakonsen í millivigt.
Þau Inga Birna Ársælsdóttir, Pétur Óskar Jóhannesson og Sunna Rannveig Davíðsdóttir keppa á morgun sem og fyrrgreindir Íslendingar fari þeir áfram í næstu umferð.
Bardagarnir verða ekki sýndir í beinni útsendingu á Fight Pass rás UFC líkt og talið var en verða sýndir eftir að keppni lýkur. Hægt verður að fylgjast með framgangi keppenda á Snapchat aðgangi Mjölnis undir mjolnirmma.
Hátt í 200 keppendur eru á mótinu frá u.þ.b. 30 löndum og þurfa sigurvegararnir í stærstu flokkunum að sigra fimm bardaga á fimm dögum til að vinna flokkinn.