Fjórir Mjölnismenn munu berjast á MMA bardagakvöldi í Færeyjum þann 6. maí. Bardagakvöldið kallast North Atlantic Fight Night en tveir Íslendingar munu berjast sinn fyrsta MMA bardaga.
Bjartur Guðlaugsson (1-2) berst sinn fjórða MMA bardaga en hann barðist síðast á Evrópumótinu í Prag í nóvember. Bjartur mætir Frederik Strauss (4-0) frá Danmörku en bardaginn fer fram í fjaðurvigt.
Björn Þorleifur Þorleifsson (1-1) barðist einnig á Evrópumótinu síðast en hann vann sinn fyrsta MMA bardaga eftir aðeins 50 sekúndur í fyrra. Björn mætir Dananum Erhan Okuroglu frá Rumble Sports Academy í millivigt en þetta verður fyrsti MMA bardaginn hans.
Björn Lúkas Haraldsson mun keppa sinn fyrsta MMA bardaga á kvöldinu. Björn hefur mikla keppnisreynslu úr júdó, tækvondó og BJJ og tekur nú sinn fyrsta MMA bardaga. Björn Lúkas mætir Håvar Hobbesland (1-1) frá Frontline Academy í Noregi.
Rétt eins og Björn Lúkas mun Þorgrímur Þórarinsson berjast sinn fyrsta MMA bardaga. Hann mætir Tony Høj Nielsen sem hefur barist tvo bardaga en báðir verið dæmdir jafntefli sem er nokkuð sérstakt. Bardaginn fer fram í veltivigt en Nielsen kemur frá Siam MMA í Danmörku.
Þetta verður í fyrsta sinn sem Íslendingar berjast í MMA í Færeyjum og merkilegt að Íslendingar þurfi að fara til Færeyja til að fá að berjast í MMA.