Föstudagstopplistinn þessa vikuna er tileinkaður versta hárinu í MMA. Margir MMA kappar eru með skrautlegar hárgreiðslur en hér höfum við fimm verstu hárin, eða hárgreiðslurnar, í MMA.
5. Clay Guida
Hárið á Clay Guida er eflaust þekktara en margir bardagamenn innan raða UFC. Þetta er kannski ekkert hræðilegt hár en hvernig getur þetta ekki truflað hann í bardaga? Hann er alltaf að taka hárið frá augunum og hefur það ekkert breyst á hans níu árum í UFC. Guida, klipptu þig eða gerðu fastar fléttur, þetta truflar þig og áhorfendur!
4. Chris Leben
Chris Leben er þekktastur fyrir sitt eldrauða hár í bardögum en hér að ofan má sjá nokkrar útgáfur af þeim. Hann hefur einnig gert fleiri tilraunir en oftast má sjá rauða litinn. Þetta er ekki glæsilegt hár.
3. Seth Petruzelli
Líkt og með Chris Leben hefur Seth Petruzelli verið duglegur að lita á sér hárið. Petruzelli hefur lagt hanskana á hilluna og verður helst minnst fyrir litríka hárið og rothögg hans gegn Kimbo Slice. Gæti verið verra en hárið hans fær samt falleinkunn.
2. Hermes Franca
Hermes Franca hefur skartað nokkrum mismunandi hárgreiðslum en bleiku krullurnar eru án efa þær verstu. Ekki undir nokkrum kringumstæðum eru bleikar krullur töff.
1. Roy Nelson
Roy Nelson er einn sérstakasti bardagamaður UFC. Hann er með alltof stóra bumbu miðað við atvinnuíþróttamann, skartar mölleti og er aðhlátursefni yfirmanns síns, Dana White. Nelson skartar ósnyrtilegu skeggi með mölletinu og sú samblanda er ekki hugguleg. Roy Nelson er með versta hárið í MMA.
Aðrir sem komu til greina: Mayhem Miller, Mike Pyle, Louis Gaudinot, Miguel Torres,