Gunnar Nelson vigtaði sig inn í alvöru vigtuninni rétt í þessu. Gunnar var 77 kg á vigtinni.
Alvöru vigtunin fer fram um þessar mundir á hótelinu þar sem bardagamennirnir dvelja á. Þessi snemmbúna vigtun er aðeins opin fjölmiðlum en síðar í dag fer sjónvarpsvigtunin fram í O2 Arena sem er öllum opin.
Gunnar var síðastur til að mæta í vigtunina en vigtunin kláraðist á mettíma eða á hálftíma.
Alan Jouban vigtaði sig inn rétt í þessu og náði vigt.