Gunnar Nelson sat fyrir svörum ásamt liðsfélögum sínum í SBG liðinu á sérstökum „Spurt og svarað“ viðburði í Dublin í gær. Þar sagði hann frá því þegar hann hitti John Kavanagh fyrst.
Þeir Conor McGregor, Gunnar Nelson, John Kavanagh, Artem Lobov og Cathal Pendred sátu fyrir svörum aðdáenda á The Takeover Q&A: Powered by Reebok viðburðinum í gær.
Gunnar Nelson var m.a. spurður út í fyrstu kynni hans af John Kavanagh. Gunnar Nelson var 16 ára gamall þegar John Kavanagh heimsótti Ísland fyrst en Gunnar hefur æft að mestu leiti undir handleiðslu hans síðan þá. Gunnar sagði áhorfendum frá fyrstu glímu þeirra sem var fremur óvenjuleg.
„Við glímdum, þetta var í fyrsta sinn sem við glímdum. Hann bókstaflega hélt mér niðri og kitlaði mig. Hann hélt mér niðri með annarri hendi, sat á mér og kitlaði mig til dauða,“ sagði Gunnar um fyrstu glímuna.
Aðspurður hvort þetta sé satt gat Kavanagh hvorki neitað né staðfest þessa frásögn. Þá sagði hann enn fremur að núna sé það Gunnar sem haldi honum niðri.
Myndband af frásögn Gunnars má sjá hér að neðan.