Vigtunin fyrir UFC 194 var að klárast rétt í þessu. Allir náðu vigt og er því ekkert nema stórslys sem getur komið í veg fyrir að bardagarnir fari fram á morgun.
Bæði Gunnar og Demian Maia voru 170 pund eða 77 kg. Það var ekkert nema vinsemd og virðing af hálfu beggja eins og búast mátti við af þessum heiðursmönnum er þeir mættust augliti til auglits á sviðinu.
Það var þó aðeins meira um læti hjá Conor McGregor og Jose Aldo eins og við var að búast. Dana White, forseti UFC, þurfti að skilja þá að á sviðinu.
Salurinn var fullur af Írum og fékk Gunnar frábærar móttökur er hann gekk á sviðið. Aftur á móti var baulað á Demian Maia af Írunum. Fyrirfram var talið að salurinn yrði fullur af Brasilíumönnum og Írum en lítið heyrðist í Brasilíumönnunum á meðan Írarnir áttu salinn. Bauluðu þeir á fjaðurvigtarmeistarann Jose Aldo er hann gekk að vigtinni.
Vigtunina í heild sinni má sjá hér að neðan.