Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir úr Tý keppir sinn fyrsta bardaga á Evrópumótinu í MMA á morgun. Ingibjörg er í öðrum bardaga dagsins en dagskrá morgundagsins hefst kl. 8 í fyrramálið.
Ingibjörg Helga keppir í fluguvigt kvenna og mætir Inka Räty á morgun, miðvikudag. Räty er búin með einn áhugamannabardaga í MMA samkvæmt Tapology og Sherdog en þann bardaga vann hún með uppgjafartaki í 2. lotu.
Ingibjörg Helga er sjálf að taka sín fyrstu skref í MMA en hún hefur mikla reynslu úr hnefaleikum og er margfaldur Íslandsmeistari í íþróttinni.
Dagskrá Evropumótsins hefst kl. 8 í fyrramálið á íslenskum tíma en Ingibjörg Helga er í 2. bardaga dagsins. Bardagarnir á mótinu eru sýndir á IMMAF.TV en hægt er að kaupa aðgang að bardögum mótsins á 4,99 evrur.
Við hvetjum því lesendur til að vera með á nótunum fljótlega upp úr kl. 8 í fyrramálið.