Það er ótrúlegt að hugsa til þess að hægt sé að slasast við upptökur á kynningarefni en sú var raunin hjá Johny Hendricks. Nick Diaz er kannski ekki svo vitlaus að vilja ekki taka þátt í upptökum á kynningarefni.
Johny Hendricks varð fyrir því óláni að fá annars stigs bruna á bakinu þegar ljós voru sett of nálægt honum. Hendricks reyndi að halda áfram æfingum en þurfti að taka tveggja daga frí frá æfingum sem hann var að vonum mjög ósáttur með.
UFC hefur beðið Hendricks afsökunar en maðurinn með múrsteinshöndina bað UFC ekki um að borga neina reikninga í sambandi við meiðslin.
Kynningarmyndbandið má sjá hér að neðan: