Tuesday, March 19, 2024
HomeForsíðaJose Aldo mætir Chad Mendes á UFC 176

Jose Aldo mætir Chad Mendes á UFC 176

Jose-Aldo-2Fjaðurvigtarmeistari UFC, Jose Aldo, mun berjast við Chad Mendes í annað sinn á UFC 176 þann 2. ágúst. Kapparnir mættust síðast í janúar 2014 þar sem Aldo sigraði eftir rothögg.

Þetta eru ekki óvæntar fréttir þar sem fastlega var búist við að þeir myndu mætast eftir að staðfest var að Cub Swanson myndi mæta Jeremy Stephens. Jose Aldo varði titil sinn 7. sinn í UFC þegar hann sigraði Ricardo Lamas eftir dómaraákvörðun. Aldo er að margra mati einn allra besti bardagamaður heims, pund fyrir pund, og hefur ekki lent í neinum teljandi vandræðum í bardögum sínum.

jose aldo
Jose Aldo grípur grimmt í búrið.

Fyrri bardagi milli þeirra endaði með glæsilegu rothöggi Aldo eftir vel tímasett hnéspark. Rothöggið átti sér stað eftir 4:59 í 1. lotu og hljóp Aldo úr búrinu eftirminnilega. Þrátt fyrir glæsilegt rothögg var Aldo ekki laus við gagnrýni þar sem hann greip augljóslega í búrið til að verjast fellum Mendes án þess að vera refsað af dómara.

Jose Aldo Knees and Pounds Chad Mendes - UFC 142

Þetta er eina tap Mendes á ferlinum en síðan hann tapaði gegn Aldo hefur hann sigrað fimm bardaga í röð (þar af 4 með rothöggi) afar sannfærandi. Chad Mendes hefur bætt sig gríðarlega standandi með hjálp Duan Ludwig hjá Team Alpha Male. Það verður spennandi að sjá hvernig Mendes vegnir í þetta sinn gegn Aldo en bardaginn fer fram um verslunarmannahelgina í Los Angeles.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular