Khabib Nurmagomedov er búinn að ná tilsettri þyngd fyrir bardagann gegn Conor McGregor á UFC 229 á morgun. Khabib var 155 pund í formlegu vigtuninni rétt í þessu.
Formleg vigtun fer fram á hóteli bardagamannanna í Las Vegas þessa stundina. Vigtunin fer fram á milli kl. 9 og 11 í morgun og hafa bardagamenn því tveggja klukkutíma glugga til að vigta sig inn.
Khabib var fyrstur til að stíga á vigtina og var akkúrat 155 pund fyrir 155 punda léttvigtarbardagann á morgun gegn Conor McGregor. Aðrir bardagamenn eru þessa stundina að vigta sig inn en Conor hefur ekki stigið á vigtina enn sem komið er.