Monday, September 16, 2024
Minigarðurinnspot_imgspot_imgspot_img
HomeInnlentLogi Geirsson varð Norðurlandameistari!

Logi Geirsson varð Norðurlandameistari!

Norðurlandamótið í MMA (blönduðum bardagaíþróttum) fór fram um síðustu helgi í Danmörku en þátttakendur voru frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Hvert land mátti senda einn keppenda í hverjum þyngdarflokki. Alls kepptu fjórir keppendur fyrir Íslands hönd og voru þeir allir úr Mjölni en þetta voru þeir, Aron Franz Bergmann Kristjánsson í léttivigt, Mikael Aclipen í veltivigt, Logi Geirsson í millivigt og Júlíus Bernsdorf í þungavigt. Gunnar Nelson fylgdi hópnum sem þjálfari ásamt fleirum.

Logi Geirsson gerði sér lítið fyrir og varð Norðurlandameistari í sínum flokki eftir öruggan sigur á Norðmanninum Vebjørn Aunet. Allir dómararnir gáfu Loga sigur í öllum þremur lotunum. Þetta var frumraun Loga í MMA og gullið því sérstaklega sætt. Það er vægast sagt ekki hægt að biðja um betri byrjun á ferlinum sem vonandi verður langur og farsæll. Logi hefur þó sýnt mátt sinn og megin á uppgjafarglímumótum hérlendis en hann er m.a. ríkjandi Íslandsmeistari í sínum flokki.

Instagram: @klosterskovfoto

Mikael Aclipen vann til silfurverðlauna í sínum flokki, eftir mjög umdeilt tap í úrslitaviðureign gegn heimamanninum Patrick Sandager. Mikael hafði áður unnið Finnann Theo Kolehmainen örugglega með hengingartaki í fyrstu lotu í undanúrslitum. Eins og áður segir var sigur Patrick á Mikael mjög umdeildur en bardaginn fór í dómaraúrskurð.

Júlíus Bernsdorf þurfti einnig að sætta sig við silfur eftir tap á dómaraúrskurði gegn heimamanninum Jakob Dyrup. Bardaginn fór allur fram standandi þar sem þeir skiptust á höggum í þrjár lotur og hlaut heimamaður sigur, réttilega að þessu sinni.

Aron Franz komst ekki í úrslit eftir tap gegn heimamanninum Sigurd Axel Rømer í undanúrslitum en bardaginn vannst á tæknilegu rothöggi í þriðju lotu.

Við Íslendingar getum hins vegar vel við unað með eitt gull og tvö silfur þó við hefðum svo sannarlega vilja tvö gull þar sem Mikael hefði klárlega átt að fá dómaraúrskurðinn sín megin í úrslitaviðureigninni gegn heimamanninum.

spot_img
spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -spot_img

Most Popular