Eitt stærsta glímumót ársins, Mjölnir Open, fer fram um helgina. Í dag verður keppt í fullorðinsflokkum en unglingaflokkarnir fara fram á morgun, sunnudag.
Fullorðinsmótið hefst kl 11 í dag en keppt er í nogi uppgjafarglímu (án galla). Keppt verður í fimm þyngdarflokkum karla og þremur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka. Um 70 keppendur eru skráðir á mótið.
Aðgangseyrir fyrir áhorfendur eru 500 kr. og stendur mótið fram eftir degi í húsnæði Mjölnis í Öskjuhlíðinni.
Á sunnudaginn er svo Mjölnir Open ungmenna en þar er einnig keppt í uppgjafarglímu án galla. Þar er keppt í fimm aldursflokkum: 2000-2001, 2002-2003, 2004-2005, 2006-2007 og 2008-2009. Mótið hefst kl 10:30 og stendur fram eftir degi en aðgangseyrir er ókeypis.
Nánari upplýsingar um mótið má finna á vef Mjölnis hér.