Wednesday, April 24, 2024
HomeForsíðaMjölnir Open 14 fer fram á laugardaginn

Mjölnir Open 14 fer fram á laugardaginn

Mjölnir Open verður haldið í 14. sinn nú á laugardaginn. Mótið er eitt stærsta glímumót ársins og nokkurs konar óopinbert Íslandsmeistaramót í nogi uppgjafarglímu.

Keppt er í brasilísku jiu-jitsu án galla og fer mótið fram í Mjölni. Mótið hefst kl. 11 og kostar 500 kr. inn fyrir áhorfendur.

Keppt er í átta þyngdarflokkum og opnum flokki karla og kvenna. Enn er hægt að skrá sig til leiks á mótið en skráning fer fram í gegnum Smoothcomp.

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:

Opinn flokkur karla
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:

Opinn flokkur kvenna
+70 kg kvenna
– 70 kg kvenna
– 60 kg kvenna

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular