Friday, March 29, 2024
HomeForsíðaMjölnir Open fer fram um helgina

Mjölnir Open fer fram um helgina

Eitt stærsta uppgjafarglímumót ársins, Mjölnir Open, fer fram um helgina. Þetta er í 13. sinn sem mótið er haldið en mótið er nokkurs konar óopinbert Íslandsmeistaramót í nogi glímu.

Keppt er í brasilísku jiu-jitsu án galla (nogi) og er keppt í átta þyngdarflokkum auk opinna flokka í báðum kynjum. Mótið hefst kl. 11 á laugardaginn í húsnæði Mjölnis í Öskjuhlíðinni og kostar 500 kr. inn.

Enn er hægt að skrá sig á mótið en skráning fer fram í gegnum Smoothcomp og er keppnisgjald 4000 kr.

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:

Opinn flokkur karla
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:

Opinn flokkur kvenna
+70 kg kvenna
– 70 kg kvenna
– 60 kg kvenna

Á sunnudeginum fer svo fram Mjölnir Open ungmenna þar sem keppt er í aldursflokkum ungmenna fæddra 2001-2002, 2003-2004, 2005-2006, 2007-2008, 2009-2010 og 2011-2013.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular