Wednesday, May 1, 2024
HomeErlentMMA heimshornið: Rothögg í ACB og Rizin

MMA heimshornið: Rothögg í ACB og Rizin

ACB 86 fór fram í gær í Moskvu í Rússlandi. Rizin 10 fer fram um þessar mundir í Japan og höfum við þegar séð áhugaverð tilþrif þar.

Á ACB 86 bardagakvöldinu í gær mættust þeir Beslan Isaev og Ciro Rodrigues. Sá síðarnefndi tók bardagann með afar skömmum fyrirvara en nældi sér sennilega í besta sigur ferilsins.

Í byrjun 2. lotu náði Rodrigues vel tímasettum olnboga sem kláraði bardagann.

Rizin 10 fer fram í Japan núna þar sem Daron Cruickshank náði ótrúlegu hásparki í 1. lotu. Andstæðingurinn Koshi Matusmoto féll niður og sendi Cruickshank honum fingurinn er hann lá niðri. Þetta var annar sigur Cruickshank í röð en hann hefur verið hjá Rizin síðan hann var látinn fara úr UFC.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular