Friday, April 26, 2024
HomeErlentMyndband: Kyoji Horiguchi rotaði Ian McCall eftir aðeins 9 sekúndur

Myndband: Kyoji Horiguchi rotaði Ian McCall eftir aðeins 9 sekúndur

Rizin 10 fór fram í morgun í Japan. Í aðalbardaga kvöldsins mættust þeir Kyoji Horiguchi og Ian McCall.

Bardaginn stóð ekki lengi yfir en eftir aðeins 9 sekúndur var dómarinn búinn að stöðva bardagann.

Horiguchi var áður fyrr í UFC þar sem hans eina tap kom gegn Demetrious Johnson um titilinn. Hann ákvað að söðla um og berjast frekar í Japan og hefur núna unnið níu bardaga í röð.

Bardaginn gegn McCall (sem einnig hefur verið í UFC) og síðustu fjórir bardagar Horiguchi þar áður voru allir í bantamvigt. Það væri áhugavert að sjá Horiguchi aftur í UFC í fluguvigtinni.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular