Al Iaquinta sigraði Jorge Masvidal eftir klofna dómaraákvörðun. Áhorfendur bauluðu harkalega er niðurstaðan var kveðin upp.
Áhorfendur voru ekki sammála dómurunum og létu í ljós óánægju sína. Al Iaquinta tók því sem svo að áhorfendur væru að baula á sig. Hann varpaði því nokkrum F-bombum í beinni útsendingu á Fox í viðtalinu í búrinu.