Bardagamaðurinn Ben Askren söng sína útgáfu af laginu Hello með Adele á Fighters Only verðlaunaathöfninni síðasta föstudag. Í hans útgáfu af laginu syngur hann m.a. til Dana White og Johny Hendricks og biðst afsökunar á orðbragði sínu.
Ben Askren berst um þessar mundir í ONE Championship í Singapúr. Hann var áður veltivigtarmeistari Bellator en fékk ekki samning við UFC á sínum tíma og samdi þess í stað við ONE.
Í laginu veltir Askren fyrir sér hvort hann muni einhvern tímann komast í UFC þar sem hann heldur áfram að vinna og vinna. Þá gerir hann grín að sjálfum sér og biður að heilsa frá „Askren side“ í Singapúr.