Nýjasti Inside the Octagon þátturinn er kominn en þar fara þeir Dan Hardy og John Gooden yfir bardaga Rondu Rousey og Amöndu Nunes.
Þær Rousey og Nunes mætast í aðalbardaganum á UFC 207 á föstudaginn. Þetta verður fyrsta titilvörn bantamvigtarmeistarans Amöndu Nunes en hún tók beltið af Mieshu Tate á UFC 200 í sumar.
Ronda Rousey hefur ekkert barist síðan á UFC 193 í nóvember í fyrra. Það verður áhugavert að sjá hvernig hún kemur til leiks á föstudaginn en hér greina þeir Hardy og Gooden bardagann.