Egill Øydvin Hjördísarson er kominn í úrslit Evrópumótsins í MMA eftir sigur á Tencho Karaenev í gær.
Þetta var ansi sætur sigur fyrir Egil enda tapaði hann fyrir Tencho á Evrópumótinu í fyrra.
Mjölnir birti fyrr í dag brot úr bardaganum þar sem má sjá Egil klára Tencho með „D’Arce“ hengingu eins og honum einum er lagið. Egill fer mikið í þessa hengingu og segist sjá hana í öllum stöðum.
Egill mætir Pawel Zakrzewsk frá Póllandi í dag í úrslitunum í léttþungavigt.