Gunnar Nelson og Mjölnir fá stóra rullu í nýjasta UFC Connected þættinum. Í þættinum er fjallað um Mjölni, Gunnar og Ísland auk annarra eins og Volkan Oezdemir, Marc Diakiese og Nad Narimani.
UFC sendi sjónvarpslið til að taka upp Gunnar á æfingum í febrúar í Mjölni á meðan fjöldinn allur af erlendum bardagamönnum var hér á landi. Í þættinum er talað við Gunnar, Harald Nelson, Sunnu Rannveigu Davíðsdóttur, Nicolas Dalby og John Kavanagh.