Friday, April 26, 2024
HomeErlentMyndbönd: Gamlir bardagar með Overeem og Arlovski

Myndbönd: Gamlir bardagar með Overeem og Arlovski

Þeir Alistair Overeem og Andrei Arlovski mætast í aðalbardaga UFC bardagakvöldsins á sunnudaginn. Hér má sjá báða bardagamenn í essinu sínu.

UFC gefur alltaf út góða bardaga með stjörnum komandi bardagakvölda á Youtube rás sinni. Að þessu sinni hafa bardagasamtökin gefið okkur bardaga með Alistair Overeem og Andrei Arlovski.

Gunnar Nelson mætir Albert Tumenov í þriðja síðasta bardaga sunnudagsins.

Fyrsti bardagi Alistair Overeem í UFC var gegn ofurstjörnunni Brock Lesnar í desember 2011. Overeem kom inn í UFC með miklar væntingar á bakinu og olli ekki vonbrigðum í frumraun sinni.

Hinn 37 ára Arlovski hefur verið lengi að. Í nóvember 2002 mætti hann Ian Freeman á UFC 40. Arlovski varð síðar þungavigtarmeistari UFC en tapaði titlinum fyrir áratug síðan.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular