Dhafir Harris, betur þekktur sem Dada 5000, mætir Kimbo Slice á Bellator 149 í kvöld. Harris hefur sigrað báða bardaga sína í MMA en ekki litið neitt stórkostlega vel út.
Ef einhver var í vafa um hvort Dada 5000 ætti heima í Bellator búrinu þarf sá hinn sami ekki að gera annað en að horfa á bardaga hans. Þessi 38 ára maður er einfaldlega hræðilega lélegur bardagamaður.
Í hans fyrsta MMA bardaga má segja að dómarinn hafi hjálpað honum ansi mikið.
Hér er seinni bardaginn sem var ekki mikið skárri.
https://www.youtube.com/watch?v=pszBTVzneq0
Kimbo Slice má eiga það að hann lítur ekkert hræðilega út standandi og hefur æft hjá American Top Team. Það sama er ekki hægt að segja um Dada 5000 en hér má sjá hann á púðunum fyrr í vikunni.
Dada 5000 channels Buakaw during open workouts
This man is a fine-tuned killing machine pic.twitter.com/yMun7Lgpnw
— caposa (@GrabakaHitman) February 17, 2016
Enn á ný spyrjum við okkur, hvernig getur Bellator boðið upp á þetta?