Það hefur varla farið framhjá nokkrum að UFC 205 fer fram í kvöld. Conor McGregor mætir Eddie Alvarez í aðalbardaga kvöldsins en hér eru fjölmargar ástæður til að horfa á bardagakvöldið.
New York, New York: Fyrsta bardagakvöld UFC í New York ríki síðan 1995 fer fram annað kvöld. Bardagakvöldið fer fram í hinni sögufrægu Madison Square Garden höllinni. Þetta verður fyrsti viðburður UFC í New York ríki síðan íþróttin var lögleidd fyrr á árinu og sannarlega söguleg stund. Sennilega er þetta stærsta, ef ekki það stærsta, bardagakvöld allra tíma.
Verður Conor tvöfaldur meistari? Aðalbardagi kvöldsins verður viðureign fjaðurvigtarmeistarans Conor McGregor og léttvigtarmeistarans Eddie Alvarez. Barist er upp á léttvigtarbeltið en þetta er í fyrsta sinn síðan 2009 þar sem tveir ríkjandi meistarar mætast. Takist Conor að vinna Alvarez verður hann sá fyrsti til að halda tveimur beltum á sama tíma. Alvarez er þó langt í frá auðveldur mótherji fyrir Conor og ætti þetta að verða hörku bardagi.
Nýr meistari í veltivigt? Fyrsta titilvörn veltivigtarmeistarans Tyron Woodley fer fram á morgun. Andstæðingur hans, Stephen Thompson, er talinn sigurstranglegri af veðbönkum og eru margir sérfræðingar á því að Thompson muni hampa beltinu í kvöld. Woodley hefur þó oft verið afskrifaður áður og er sannfærður um að hann muni enn og aftur sýna sérfræðingunum að þeir hafa rangt fyrir sér.
Fyrsti evrópski titilbardaginn: Þær pólsku Joanna Jedrzejczyk og Karolina Kowalkiewicz mætast um strávigtartitilinn í kvöld. Þetta verður í fyrsta sinn sem tveir Evrópubúar berjast um titil í UFC. Flestir búast við öruggum sigri Jedrzejczyk en það getur allt gerst.
Hvernig kemur Chris Weidman til baka? Hvorki Chris Weidman né Yoel Romero hafa barist síðan 12. desember 2015. Þeir mætast á morgun í einum áhugaverðasta bardaga kvöldsins. Weidman átti að mæta Luke Rockhold í júní en meiddist skömmu fyrir bardagann. Þetta verður því fyrsti bardaginn hans eftir tapið gegn Rockhold í fyrra. Yoel Romero barðist síðast við Ronaldo ‘Jacare’ Souza en skömmu eftir bardagann féll hann á lyfjaprófi. Það verður því áhugavert að sjá hvernig báðir koma til leiks og þá sérstaklega Weidman.
Öruggur sigur hjá Mieshu Tate? Miesha Tate er væntanlega í hefndarhug eftir að hafa tapað bantamvigtarbeltinu til Amöndu Nunes á UFC 200. Fyrsta skrefið aftur að titlinum verður Raquel Pennington. Síðast gekk niðurskurðurinn herfilega hjá Tate en hún leit vel út í vigtuninni í morgun. Þetta er bardagi sem Tate á að vinna.
Jeremy Stephens ætlar að láta vita af sér: Hver man ekki eftir því þegar Jeremy Stephens reyndi að koma sér í sviðsljósið á blaðamannafundinum fyrir UFC 205 í haust? Hann mætir Frankie Edgar á morgun og gæti svo sannarlega minnt á sig og stolið sviðsljósinu í skamma stund takist honum að rota Frankie Edgar.
Hvað gerir Khabib Nurmagomedov? Rússinn öflugi er ósigraður í 23 bardögum og vill meina að hann eigi skilið að fá titilbardaga. Tony Ferguson er að margra mati á undan Nurmagomedov í röðinni og því þarf Rússinn að minna rækilega á sig gegn Michael Johnson annað kvöld. Johnson er hörku bardagamaður og ætti þetta að verða frábær bardagi.
Fyrsti bardagi kvöldsins hefst á Fight Pass rás UFC á miðnætti en aðalhluti bardagakvöldsins hefst kl 3 á Stöð 2 Sport.