Ronda Rousey og Holly Holm mætast á UFC 193 í Ástralíu þann 15. nóvember. Ný stikla fyrir bardagann hefur litið dagsins ljós og má segja að hún sé með óvenjulegri hætti.
Stiklan var frumsýnd á rás þáttarins The Ellen Degeneres Show en Rousey var gestur þáttarins í síðasta mánuði. Stiklan sýnir uppgang Rousey með dramatískum hætti og er talsvert öðruvísi stikla en við eigum að venjast.
Andstæðingur Rousey, Holly Holm, kemur afar lítið fyrir í stiklunni.