Tuesday, March 19, 2024
HomeForsíðaPétur Óskar með gull og brons á Grappling Industries

Pétur Óskar með gull og brons á Grappling Industries

Pétur Óskar Þorkelsson fékk tvenn verðlaun á Grappling Industries í Amsterdam um helgina.

Pétur Óskar Þorkelsson úr Mjölni keppti á Grappling Industries mótinu um helgina í brasilísku jiu-jitsu. Pétur keppti í -70 kg flokki brúnbeltinga í bæði nogi og í gallanum.

Í gallanum náði Pétur í gull í sínum flokki en hann vann allar þrjár glímurnar sínar í flokknum. Tvær glímur vann hann á stigum og eina á uppgjafartaki.

Í nogi hafnaði Pétur Óskar í 3. sæti. Pétur vann tvær glímur en tapaði tveimur. Pétur var eini Íslendingurinn sem keppti á mótinu en hann keppir á IBJJF Worlds nogi í Los Angeles í næstu viku ásamt fleiri Íslendingum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular