Thursday, March 28, 2024
HomeErlentRonda Rousey stjórnar Saturday Night Live í janúar

Ronda Rousey stjórnar Saturday Night Live í janúar

Ronda RouseyRonda Rousey mun stjórna þættinum Saturday Night Live þann 23. janúar. Þetta verður hennar fyrsta opinbera framkoma síðan hún tapaði fyrir Holly Holm.

Ronda Rousey var rotuð af Holly Holm þann 15. nóvember síðastliðinn og hefur hvorki sést né heyrst í henni síðan þá fyrir utan einn póst á Instagram.

Rousey er aðeins sú þriðja úr bardagaheiminum sem stjórnar gamanþættinum en áður höfðu boxararnir Marvelous Marvin Hagler og George Foreman gert hið sama.

Þættinum er ávallt stjórnað af þekktum stjörnum en aðrir íþróttamenn sem hafa stjórnað þættinum eru goðsagnir á borð við Tom Brady, LeBron James, Michael Jordan, Wayne Gretzky og Peyton Manning.

Óvíst er hvenær Rousey muni snúa aftur í MMA en hún er um þessar mundir við upptökur á endurgerð á myndinni Roadhouse.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular