HomeInnlentSigraði Evrópumeistarann og fékk titilbardaga á Íslandi

Sigraði Evrópumeistarann og fékk titilbardaga á Íslandi

Hekla Friðriksdóttir sigraði á dögunum ríkjandi Evrópumeistara í MMA í Danmörku með armbar í fyrstu lotu. Þetta var klárlega stærsti sigurinn hennar Heklu á ferlinum hingað til en Hekla átti fyrir stafni bardaga á Glacier Fight Night 3 sem fram fer þann 3. október í Framheimilinu í Úlfársdal. Bjarki Þór Pálsson, sem á og skipuleggur keppnina, gaf út í gær að frammistaða Heklu og gæði andstæðingsins verðskuldi belti og ákvað Bjarki að gera viðureignina að titilbardaga . Því verður barist yrði upp á Glacier Fight Night Bantamvigtarbeltið.

Hekla er með fjóra sigra og eitt tap á ferlinum en tapið kom gegn þýsku kickbox-vélinni Katherine Haberley á GFN 2 fyrr á árinu. Katherine er ríkjandi bantamvigtarmeistari GFN en hún býr og æfir að mestu í Tælandi og ætlar sér ekki að koma aftur til Íslands og verja beltið. Bantamvigtarbeltið í kvennaflokki er því laust en miðað við nýjustu vendingar verður það til vinnings þann 3. október.

Bardagaáhugafólk á Íslandi er líklega farið að kannast við Heklu en hún mun mæta Norðurlandameistaranum Kerrtu Saarnisaari frá Finnlandi á GFN. Kerrta er 7–5 sem bardagakona. Hún byrjaði með herkjum þar sem hún tapaði fyrstu tveimur bardögunum sínum áður en hún sótti fyrsta sigurinn sinn og fór þá að tapa og vinna til skiptis. Kerrta hefur núna einungis tapað einum bardaga af síðustu fimm og var það í úrslitaviðureigninni sinni á EM gegn Caroline Moller, sem Hekla sigraði nú á dögunum. Kerrtu er mjög virkur keppandi. Hún barðist síðast í júní og verður bardaginn hennar gegn Heklu sá sjötti á árinu!

Að sögn Heklu er Kerrtu Saarnisaari hættulegri andstæðingur en Caroline Moller. Sú finnska er góður striker og öflug á flestum stöðum í MMA. Það er ekkert leyndarmál að Hekla er glímukona af guðs náð og hefur það vopn alltaf í bakhöndinni. Í þessari viðureign verður spennandi að sjá hvort að Hekla nái að þvinga Kerrtu í sinn leik og stjórna bardaganum.

spot_img
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

spot_img
spot_img

Mest Lesið