Thursday, April 25, 2024
HomeErlentTalið að Ben Askren fái Robbie Lawler í janúar

Talið að Ben Askren fái Robbie Lawler í janúar

Ben Askren er formlega kominn í UFC. Hann var ekki lengi að rífa kjaft við samkeppnisaðila sína í veltivigtina en nú virðist sem hann fái Robbie Lawler á UFC 233 í janúar.

Darren Till, Colby Covington, Mike Perry og fleiri bardagamenn í veltivigtinni hafa orðið fyrir barðinu á kjafti Askren á samfélagsmiðlum að undanförnu. Robbie Lawler hefur samt alveg sloppið við skítkastið en nú bendir allt til að hann verði sá sem mætir Askren í frumraun hans í UFC.

Miðað við heimildir ESPN fer bardaginn fram á UFC 233 þann 26. janúar í Kaliforníu. Frumraun Askren í UFC er beðið með mikilli eftirvæntingu og verður áhugavert að sjá hvað hann getur gert við sterkustu bardagamenn heims.

Robbie Lawler er fyrrum veltivigtarmeistari en hefur ekki barist síðan hann tapaði fyrir Rafael dos Anjos í desember á síðasta ári. Lawler sleit krossband í bardaganum og hefur verið að jafna sig á þeim meiðslum.

Pétur Marinó Jónsson
Pétur Marinó Jónssonhttps://www.mmafrettir.is
Eigandi og ritstjóri vefsins www.mmafrettir.is -Æft bardagaíþróttir í einhver ár (fjólublátt belti í BJJ) -BS í sálfræði -Lýsi UFC á Viaplay
RELATED ARTICLES

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

- Advertisment -

Most Popular