12. þáttur Tappvarpsins var tekinn upp í gær. Í þættinum fórum við vel yfir UFC 199 og skoðuðum stóra Ariel Helwani málið.
Síðustu dagar hafa verið ansi viðburðaríkir í MMA heiminum. UFC 199 var besta bardagakvöld ársins en kvöldið féll í skuggann á banni fjölmiðlamannsins Ariel Helwani. Helwani var dæmdur í lífstíðarbann af UFC fyrir að greina frá því að Brock Lesnar muni berjast á UFC 200. Þessu greindi hann frá þremur tímum áður en UFC tilkynnti komu Lesnar.
Hér að neðan má hlusta á þáttinn í heild sinni.