Í 27. þætti Tappvarpsins mætti Magnús Ingi Ingvarsson í heimsókn. Magnús Ingi nældi sér í brons á Evrópumótinu í MMA í nóvember og fórum við ítarlega yfir keppnina.
Það var mikið um að vera hjá Magnúsi í desember og var hann mikið á ferð og flugi. Eftir EM fór hann til London þar sem hann var í horninu hjá Bjarka Þór er hann barðist sinn annan atvinnubardaga þar. Bardaginn var umdeildur þar sem Bjarki sigraði eftir ólöglegt hné í 3. lotu og var Magnús afar reiður út í dómarann fyrir að hafa ekki stoppað bardagann fyrr.
Við fórum vel yfir allt þetta, aðeins um UFC síðustu helgi, hvar málin standa hjá Gunnari Nelson og margt fleira í þættinum.