Gunnar Nelson mætir Leon Edwards á laugardaginn á UFC bardagakvöldinu í London. Fyrsti þátturinn í videobloggi Gunnars fyrir bardagann í London hefur nú verið gefinn út.
Gunnar Nelson hélt til London á þriðjudagsmorgni og er bardagavikan því formlega hafin. Mjölnir sendir frá sér videoblogg í aðdraganda bardagans hjá Gunnari líkt og fyrir síðasta bardaga.
Í fyrsta þættinum fáum við að sjá síðustu æfinguna hjá Gunnari á Íslandi og spjall við Unnar Helgason, styrktar- og þrekþjálfara Gunnars, um æfingabúðirnar.