Þorgrímur Þórarinsson er nýr veltivigtarmeistari áhugamanna í Caged Steel (CSFC) samtökunum eftir glæstan sigur í kvöld.
Þorgrímur svæfði andstæðing sinn í þriðju lotu en bardaginn var erfiður og sýndi hann mikla seiglu og baráttuvilja. Þorgrímur er nú 2-1 á ferlinum en þetta var hans þriðji áhugamannabardagi.
Í fyrstu lotu kom andstæðingur Þorgríms út agressívur og náði mjög snemma fellu. Þorgrími tókst að snúa stöðunni við í lok lotunnar og endaði ofan á.
Í annarri lotu var Þorgrímur á botninum meiri hluta lotunnar en tókst að standa upp í lok lotunnar og endaði hana með því að pressa andstæðing sinn upp við búrið.
Í þriðju lotu náði Þorgrímur fellunni snemma og þaðan bakinu. Eftir smá baráttu náði hann „rear naked choke“ hengingu og svæfði andstæðing sinn.
Með sigrinum er Þorgrímur því nýr meistari samtakanna í veltivigt sem er frábær árangur hjá okkar manni.